Brooks Juno

Vinsælasti toppurinn frá Brooks!

Veitir hámarks stuðning

Ótrúlega þægilegur

Minnkar hreyfingu á brjóstum á æfingu

Minnkar líkur á nuddi og óþægindum

Andar vel

Nánari Lýsing

Juno er allra vinsælasti toppurinn frá Brooks. Hann veitir hámarks stuðning en er líka ótrúlega þægilegur.

Brooks eru fremstir á markaðnum í rannsóknum og prófunum á íþróttatoppum í samstarfi við ‘Breast Health at the University of Portsmouth’ þar sem Juno var prófaður í E skálastærð og skilaði 76% minnkun á hreyfingu brjóstanna í hlaupum.

Hann er með stillanlegum hlýrum og þremur þreföldum króka festingum aftan á. Skálarnar eru mótaðar eða svokölluð “unicup” sem er götuð til að auka öndun.

Virkilega vel er hugsað um allan frágang og sauma svo það séu sem minnstar líkur á nuddi og óþægindum. Efnið sem Brooks notar heitir DriLayer® sem er fljótþornandi, andar vel og færir svita í burtu frá húðinni.

Undanfarin ár hafa topparnir frá Brooks verið þeir vinsælustuí sérverslunum í Bandaríkjunum með 55-72% markaðshlutdeild. Fyrir nokkrum árum sameinaðist einnig Moving Comfort við Brooks en Moving Comfort sérhæfði sig eingöngu í íþróttafatnaði á konur og ókst þar með þekkingin í þróunarferlinu umtalsvert sem hefur skilað sér í bestu vörunum á markaðnum.

Efnin í Brooks fatnaði eru Bluesign® en það er vottun á umhverfisvænni framleiðslu.

Gildistími: 13.05.2024 - 13.05.2024

Notist hjá

Vinsælt í dag