Gisting og 3ja rétta kvöldverður fyrir tvo á Hótel Bifröst í júlí og ágúst

Gisting með morgunverði á Hótel Bifröst og þriggja rétta óvissu matseðill fyrir tvo á aðeins 24.900 kr.

Nánari Lýsing

Komdu á óvart í sumar. Vegna forfalla fengum við í sölu nokkrar gistinætur og kvöldverð á Hótel Bifröst í júlí og ágúst (val um dagsetningar birtist fyrir ofan "kaupa" hnappinn). Gisting og góður matur á fallegum stað í hjarta Borgarfjarðar á besta tíma sumarsins - Ekki missa af þessu!

Gisting með morgunverði og þriggja rétta óvissumatseðill Hótel Bifrastar fyrir tvo á aðeins 24.900 kr. Hægt er að velja um 4 dagsetningarnar í júlí. Ath. að takmarkað magn herbergja er á hverri dagsetningu. 

Golf

Hægt er að bæta við 4 golfhringjum á Glanna fyrir aðeins 6000 kr. Þannig er hægt að fara einn hring á komudegi og annan daginn eftir. Einnig er tilvalið að skoða fossinn Glanna eða hina margrómuðu Paradísarlaut ef veðrið er gott. 

Hótel Bifröst er notalegt hótel á fallegum stað í hjarta Borgarfjarðar. Hótelið er staðsett við þjóðveg eitt, í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Á Hótel Bifröst er 51 rúmgott, bjart og hlýlegt tveggja manna herbergi. Öll herbergin eru með sér snyrtingu og sturtu, frítt wi-fi. Lyfta er á hótelinu og gott aðgengi fyrir fatlaða.

Líkamsrækt
Á Hótel Bifröst er þreksalur og líkamsrækt. Þar er einnig að finna gufubað, heitan pott og vaðlaug. Líkamsræktin er opin alla daga frá kl. 06.00 – 23.00. Hægt er að panta tíma í nudd á meðan á dvölinni stendur. Bóka þarf tímanlega í síma 8672718.

 

Göngu - og hjólaleiðir
Mjög margar göngu- og hjólaleiðir er að finna í nágrenni Hótel Bifrastar. Umhverfið sem er fjölbreytt býður upp á marga möguleika. Þræða má krákustíga í hrauninu, rölta með fram Norðuránni, fara í skógargöngu í Jafnaskarðsskóg eða ganga á Grábrók.

Gildir á fyrirfram ákveðnum dagsetningum

  • 24. júlí - Sunnudagur
  • 26. júlí - Þriðjudagur
  • 2. ágúst - Þriðjudagur
  • 5. ágúst - Föstudagur
  • 10. ágúst - Miðvikudagur

 

 

Smáa Letrið
  • Gisting og góður matur fyrir tvo á Hótel Bifröst
  • Dagsetning er valin við pöntun. Vinsaml. framsendið einnig inneignarmiðann á [email protected] eða hringið í síma 433 3030
  • Ef gestur mætir ekki á valinni dagsetningu án þess að afbóka með minnst sólarhrings fyrirvara telst inneignarmiði notaður
  • Hægt er að bæta við 4 golfhringjum fyrir 6000 kr. 

Gildistími: 01.07.2016 - 02.07.2016

Notist hjá
Hótel Bifröst, 311 Borgarnes, [email protected]

Vinsælt í dag