Sumargleði - Tvö freyðivínsglös ásamt smárétt eða ostaplatta á kampavínsbarnum Trúnó á Hlemm Mathöll

Fullkomið tilboð fyrir þá sem vilja eiga notalega stund saman, borða léttan og ljúffengan mat, dreypa á freyðivíni og detta á trúnó!

Nánari Lýsing

Úrvalið á smáréttum og ostaplatta er eftirfarandi. 

  • Blinis með reyktum Laxi, sýrðum rjóma, kavíar & dilli
  • Blinis með risarækjum, sýrðum rjóma, rauðlauk, granatepli & kaviar
  • Blinis með laxa tartar, sýrðum rjóma, skarlottulauki, freyðivíns marineruðum eplum & kóríander
  • Risarækju Brauð með tómötum, salati, risarækjum, granatepli, fersku basil & yuzu mæjó
  • Trúnó Platti, Kruðerí platti með íslenskum ostum, hráskinku, kryddpylsu, heimagerðri freyðivíns bláberjasultu & súrdeigsbrauði

Um Trúnó

Birgir R. Reynisson matreiðslumaður og Herborg Svana Hjelm viðskiptafræðingur-MBA og framkvæmdastjóri eiga og reka Trúnó í Mathöllinni á Hlemmi. Þar er einnig Fjárhúsið sem sérhæfir sig í íslensku lambi en þau Birgir og Herborg hófu rekstur staðarins í Mathöll Granda árið 2018. 

Birgir og Herborg bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Trúnó og undirstrika að allt sem þau heyra frá ykkur er að sjálfsögðu trúnaðarmál.

Smáa Letrið
  • - Innifalið eru 2 freyðivínsglös og smáréttur eða ostaplatti að eigin vali
  • - Tilboðið gildir til 30. desember 2021
  • - Mikilvægt er að koma með útprentaðan inneignarmiða

Gildistími: 09.04.2021 - 30.12.2021

Notist hjá
Trúnó - Hlemmur Mathöll Laugavegi 107, 101 Reykjavík

Vinsælt í dag