Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Henning Mankell

Fredrik Welin býr einn á eyju í sænska skerjagarðinum með gömlum hundi og ketti og hefur einangrað sig frá umheiminum, fullur af biturð eftir að hafa látið af skurðlæknisstörfum vegna alvarlegra mistaka. Hann fær engin bréf, skrifar engin, en umgengst þó engan mann nema póstinn sem kemur við stöku sinnum. Einn kaldan vetrardag stendur kona með göngugrind úti á ísnum við eyjuna – kona sem hann hefur ekki séð í nærri fjörutíu ár. Hún er komin til að láta hann efna loforð sem hann gaf fyrir óralöngu.

Henning Mankell (1948–2015) var einn helsti glæpasagnahöfundur Norðurlanda, þekktastur fyrir bókaflokk sinn um Kurt Wallander, en hann skrifaði einnig fjölda annarra bóka. Skáldsagan Ítalskir skór kom fyrst út 2006, hlaut góðar viðtökur og hefur verið þýdd á mörg tungumál. Hilmar Hilmarsson þýddi.

4.040 kr.
Afhending