Þriggja rétta lúxus kvöldverður fyrir tvo á Höfninni


Nánari Lýsing
Gjafabréf á Höfnina er falleg gjöf sem gleður, það er sent með tölvupósti stuttu eftir kaup og á bréfinu eru helstu upplýsingar um gjöfina auk inneignarnúmers en verð kemur ekki fram. Umhverfið við gömlu höfnina er notalegt og rómantískt, sérstaklega á fallegu vetrarkvöldi. Þar er nú að finna fjölda veitingastaða og einn þeirra er Höfnin sem sameinar fyrsta flokks mat úr gæðahráefni og sanngjarnt verð.
Matseðillinn er eftirfarandi:
- - Skelfisksúpa Hafnarinnar með humri, bláskel, hörpudisk, fenniku og þeyttum rjóma.
- - Gljáður nautahryggur, kryddbökuð kartafla, pönnusteiktir sveppir, Bernaisesósan fræga og rótargrænmeti.
- - Heit súkkulaðikaka með hindberjum og lakkrísís.
Um Höfnina
Höfnin er veitingastaður þar sem gæði og sanngjarnt verð fara saman. Höfnin er íslenskur veitingastaður þar sem besta hráefni sem völ er á er notað. Brynjar Eymundsson matreiðslumeistari og hans fjölskylda settu staðinn upp vorið 2010.
Höfnin tekur um 100 manns í sæti á tveimur hæðum og staðsetningin er frábær með útsýni yfir gömlu höfnina í Reykjavík þar sem notalegt er að fylgjast með sjóurunum koma að landi með spriklandi fiskinn. Höfnin er alveg á bryggjusporðinum með helstu hvalaskoðunarfyrirtækjunum.
Húsið geymir heilmikla sögu sjómanna og verkafólks sem hér bjó á árum áður. Uppskriftirnar eru klassískar en færðar til nútímans af matreiðslumönnum staðarins.
Vinsælustu réttirnir eru humar, kræklingur, rauðspretta, bleikja og íslenska nauta- og lambakjötið. Smáréttir og salöt eru frábær valkostur á veröndinni á góðviðrisdögum og hádegistilboð eru alltaf í gangi hjá okkur. Flott þjónusta og hlýlegt umhverfi bíður þín á veitingahúsinu Höfninni.
Smáa Letrið
- - Gjafabréfið verður sent í tölvupósti stuttu eftir kaup.
- - Borðapantanir eru í síma 511-2300.
- - Tilboðið gildir fyrir tvo.
- - Fullt verð miðast við verð af matseðli.
Gildistími: 06.10.2022 - 31.12.2023
Notist hjá
Vinsælt í dag