Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Karítas Hrundar Pálsdóttir

Vikuspá geymir áttatíu og sex sögur á einföldu máli. Í stuttum og aðgengilegum frásögnum eru ólíkar atvinnugreinar kynntar. Hér er leikið með þá íslensku þjóðtrú að það geti haft áhrif á hvað barn taki sér fyrir hendur í framtíðinni á hvaða vikudegi það fæðist. Sögupersónur takast á við þrautir og sigra í leit að hinum gullna meðalveg, milli frama og lukku. Sögurnar varpa ljósi á fegurð mannflórunnar og mikilvægi þess að þroskast og þróast í takt við tímann.

Vikuspá er sjálfstætt framhald af Árstíðum og Dagatali sem hafa notið mikilla vinsælda og verið kenndar víða á Íslandi sem og erlendis. Textarnir eru fjölbreyttir hvað varðar efnistök, form og stíl og flokkaðir eftir getustigi í samráði við sérfræðinga. Þar að auki fylgir viðauki með margskonar fróðleik um land og þjóð. Bókin ny´tist jafnt við kennslu sem og til yndislestrar.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Arna Magnea Danks, Varði – Edoardo Mastantuoni Morbilli, Hafsteinn Vilhelmsson, Jelena Ciric og Karítas Hrundar Pálsdóttir lesa.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun