Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Að vera foreldri er sennilegasta mikilvægasta verkefnið sem flest okkar takast á við. Uppeldi snýst alls ekki eingöngu um það að ala upp prúð börn sem gengur vel í skóla, heldur einnig að leitast við að laða fram og styrkja eiginleika sem stuðla að persónulegri velgengni og farsælum samskiptum við aðra. Í Uppeldisbókinni lýsa höfundar því hvernig börn læra frá unga aldri athafnir og framkomu með því að fylgja því fordæmi og skilaboðum sem foreldrar og aðrir í umhverfi þeirra gefa þeim. Efninu er skipt í aðgengilega kafla þar sem gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á hvaða færni foreldrar þurfi að búa yfir eða tileinka sér til að hvetja til æskilegrar hegðunar barna sinna.