Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Brian Pilkington, Guðmundur Andri Thorsson

Þó að maður hafi ekki séð eitthvað gæti það vel verið til!

Tröllin í íslenskum þjóðsögum eru skelfilegar óvættir í mannsmynd sem sífellt eru að svipast um eftir mennskum mönnum til að hneppa í þrældóm eða éta með húð og hári! Á þeim þrjátíu árum sem Brian Pilkington hefur túlkað íslenskar þjóðsagnaverur með blýant og liti að vopni hafa orðið til annars konar tröll; friðsælar verur með frjóan og síkvikan huga sem lifa í sátt við náttúruna. Í þessari einstöku bók birtast tröllin hans Brians á glæsilegum myndum ásamt snjöllum ráðum sem þau langar að miðla til okkar mannanna.