Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Snorri Snorrason

Það er enginn hægðarleikur að gæta bróður síns. Veröldin kallar og glepur, ástin veldur landskjálftum í sálinni, vinir týnast og bönd bresta. Og hvers virði eru minningarnar um æskuna og bræðralagið? Snorri Snorrason segir hér magnaða og spennandi sögu um mann sem liggur á sjúkrabeði og rifjar upp ævi sína og örlög. Hann hefur alltaf reynt að lifa kyrrlátu og heiðarlegu lífi en umheimurinn ryðst inn á gafl til hans svo að hann lendir í hringiðu æsilegra atburða. Ýmsir sem standa honum nærri reynast ekki vera allir þar sem þeir eru séðir. Aðrir hafa selt sál sína hinum grimma guði glaums og innantómra gleði.