Jakob stendur á tímamótum. Honum vegnar vel í starfi, en sambandið við eiginkonuna er orðið erfiðara en áður, og hann hefur fjarlægst stálpaðan son sinn. Þegar sagan hefst dag einn síðla vetrar eru þau hjónin á leið í bústað austur í sveitum, og tíðindalaus helgi framundan. En atburður, sem gerist þann sama dag boðar harkaleg hvörf í lífi hans.
Áleitnar spurningar vakna.
Allt frá því Sigurjón Magnússon sendi frá sér skáldsöguna Góða nótt, Silja árið 1997 hefur hann verið meðal okkar fremstu skáldsagnahöfunda. Skáldsaga hans um Kristmann Guð munds son, Borgir og eyðimerkur, vakti mikla athygli og saga hans Endimörk heimsins var tilnefnd til Íslensku bók mennta verðlaunanna. Þegar við lifum er tíunda skáldsaga Sigurjóns.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun

