Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Birnir Jón Sigurðsson

„Það þarf ekkert að vera á útopnu til að lulla í gegnum lífið. Samfélagið er troðfullt af einförum, maður tekur bara síður eftir þeim. Vegna þess að þeir eru einfarar.“

Fullorðin kona mætir velvild ókunnugra á Gefins, allt gefins, ungur maður mótmælir einn uppi á heiði og afgreiðslukona í plötubúð losar sig úr þröngum þægindahring.

Birnir Jón Sigurðsson bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir 2019. Í smásagnasafninu STRÁ ferðast lesendur um brothætta náttúru landsins, soga til sín kraft úr rakri moldinni og finna fyrir ákafri löngun til að snerta aðra manneskju.

Einnig er hægt að nálgast rafbókina á Amazon fyrir Kindle lesbretti: bit.ly/stra-kindle

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er tveir tímar og tuttugu mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:

1.950 kr.
Afhending