Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Steinunn G. Helgadóttir

„Hættulegust af öllu er hamingjan. Það er lögmál að þessari svokölluðu hamingju fylgir alltaf mikill harmur.“

Systkinin Gunnhildur og Eiður eru valdalausir samherjar í fjölskyldu þar sem foreldrarnir eru aldrei glaðir samtímis. Þegar fjölskyldan sundrast eru systkinin skilin að sem litar allt þeirra líf – Eiður verður friðsamur hugsjónamaður sem þráir að láta gott af sér leiða en Gunnhildur, sem býr yfir ofurkröftum þótt hún flíki þeim ekki, menntar sig í förðun og verður eftirsóttur líksnyrtir.

Sagnagáfa Steinunnar G. Helgadóttur er ótvíræð. Lesendur Radda úr húsi loftskeytamannsins og Samfeðra kannast vel við að flissa á einni síðu, klökkna á þeirri næstu og vaka alveg óvart allt of lengi fram eftir við lestur. Sterkasta kona í heimi er áhrifamikil fjölskyldusaga um leitina að hamingjunni, breyskleika og óvænta krafta.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 48 mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

3.920 kr.
Afhending