Your Address
Choose Delivery Method
Höfundar: Jón Ólafsson, KK, Friðrik Dór, Hildur Vala
Í Sofðu rótt færa söngfuglarnir KK, Friðrik Dór og Hildur Vala okkur fimmtán gullfalleg vögguljóð við undirleik Jóns Ólafssonar, sem ljúft er að líða með syngjandi inn í heim draumanna. Öll eiga lögin það sammerkt að hafa öðlast einstakan sess meðal þjóðarinnar og börnin elska að syngja með. Lögin í bókinni er einnig hægt að spila án söngs.
Bókaflokkurinn Tónbækurnar okkar með undirleik píanóleikarans Jóns Ólafssonar og teikningum Úlfs Logasonar hefur slegið rækilega í gegn hjá börnunum á undanförnum árum. Í þeirri röð hafa komið út Vögguvísurnar okkarJólalögin okkarLeikskólalögin okkar og fleiri.

Sofðu rótt er nýtt afsprengi þeirra frábæra samstarfs og fá þeir einhverja allra ástsælustu söngvara þjóðarinnar með sér í lið, þau Friðrik Dór, Hildi Völu og KK.

Veljið eitt laganna, ýtið á takkann og syngið með!

6.930 kr.
Delivery Info