Flokkar:
Höfundar: Jón Ólafsson, KK, Friðrik Dór, Hildur Vala
Í Sofðu rótt færa söngfuglarnir KK, Friðrik Dór og Hildur Vala okkur fimmtán gullfalleg vögguljóð við undirleik Jóns Ólafssonar, sem ljúft er að líða með syngjandi inn í heim draumanna. Öll eiga lögin það sammerkt að hafa öðlast einstakan sess meðal þjóðarinnar og börnin elska að syngja með. Lögin í bókinni er einnig hægt að spila án söngs.Bókaflokkurinn Tónbækurnar okkar með undirleik píanóleikarans Jóns Ólafssonar og teikningum Úlfs Logasonar hefur slegið rækilega í gegn hjá börnunum á undanförnum árum. Í þeirri röð hafa komið út Vögguvísurnar okkar, Jólalögin okkar, Leikskólalögin okkar og fleiri.Sofðu rótt er nýtt afsprengi þeirra frábæra samstarfs og fá þeir einhverja allra ástsælustu söngvara þjóðarinnar með sér í lið, þau Friðrik Dór, Hildi Völu og KK.
Veljið eitt laganna, ýtið á takkann og syngið með!
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun

