Your Address
Choose Delivery Method

Snati, litli labradorhvolpurinn, er besta jólagjöf sem Emilía gat hugsað sér. Þau verða strax óaðskiljanlegir vinir.

Þegar Emilía þarf að fara í skólann á ný eftir jólafrí þá finnst henni erfitt að skilja Snata eftir heima. Dag einn hverfur Snati úr garðinum við heimili Emilíu á meðan hún er í skólanum og enginn veit hvar hann er niður kominn.

Emilía er alveg ákveðin í að finna fallega hvolpinn sinn – en skyldi henni takast það?