Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Jussi Adler-Olsen

Árið 1987 hurfu nokkrar manneskjur í Kaupmannahöfn um svipað leyti án þess að vitað væri til að þær tengdust á nokkurn hátt. Rúmum tuttugu árum seinna vekja þessi mannshvörf athygli Carls Mørk og félaga hans, Assads og Rose, hjá Deild Q í dönsku lögreglunni. Smám saman rekja þau óljósa slóð, annars vegar til þekkts læknis og forystumanns í nýjum stjórnmálaflokki og hins vegar til Sprogeyjar þar sem lengi var hæli fyrir afvegaleiddar stúlkur. Sá staður reyndist mörgum vistmönnum helvíti á jörð. Og til eru þeir sem vilja frekar drepa vitnin en láta ýmislegt sem þar gerðist komast upp.

Þetta er fjórða bókin um Deild Q sem lesendur kynntust fyrst í Konunni í búrinu.

Skýrsla 64 hlaut bókmenntaverðlaunin „De gyldne laurbær“ 2010 og allar hafa bækurnar um Deild Q fengið frábærar móttökur lesenda og gagnrýnenda víða um lönd.

Jón St. Kristjánsson þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 35 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun