Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Eva María Jónsdóttir

Frá árdögum hafa menn haldið upp á sólhvörf, hörfandi skammdegi og hækkandi sól, og gert sér þá dagamun. Þar liggja rætur nútíma jólahalds sem tengist fæðingu Krists.

En eins og nærri má geta tengdust ýmsar skuggavættir þeim tíma þegar myrkrið er mest, ekki síst á fámennri og strjálbýlli eyju við ysta haf. Einmitt þá fara á stjá alls kyns verur; tröll, huldufólk, skessur, draugar, jólaköttur og jólasveinar sem höfðu ekki alltaf gott í hyggju.

Skuggahliðin jólanna er safn kvæða og sagna sem finnast hljóðritaðar eftir nafngreindu fólki frá liðinni öld. Efnið er varðveitt í þjóðfræðasafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Bókin er ætluð foreldrum og börnum að lesa saman og sér til skemmtunar of fróðleiks.