Höfundur: Nanna Kristín Christiansen
Þessi bók er skrifuð fyrir grunnskólakennara og foreldra grunnskólabarna í þeim tilgangi að vekja þá til umhugsunar og umræðu um hlutverk sitt og benda á mikilvægi samstarfs foreldra og skóla. Með bókinni er hvatt til þróunar samstarfs í samræmi við þarfir og væntingar samtímans, bent er á mögulegar leiðir, hagnýtar upplýsingar og ráð sem stuðlað geta að árangursríku samstarfi foreldra og kennara