Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Gavin Lucas; Mjöll Snæsdóttir

Skálholt: Excavations of a Bishop’s Residence and School c.1650-1790.Volume 3: The Ecofacts and Synthesis

Skálholt er einn merkasti sögustaður á Íslandi. Þar var fyrst settur biskupsstóll og staðurinn var um aldir miðstöð kirkjustjórnar, menningar og stjórnsýslu. Þetta er þriðja og síðasta bindið sem fjallar um niðurstöður umfangsmikilla fornleifarannsókna í Skálholti, en uppgröftur fór þar fram á árunum 2002–2007.

Í þessu bindi er fjallað ítarlega um lífrænar leifar sem fundust við rannsóknina, þar á meðal plöntuleifar, skordýr, dýrabein og fiskbein. Rannsóknir á þessum efniviði varpa ljósi á mataræði, búskap, umhverfi og daglegt líf þeirra sem bjuggu og störfuðu í Skálholti.

Bókin inniheldur jafnframt samantekt um niðurstöður rannsóknarinnar í heild þar sem efni allra þriggja bindanna er dregið saman. Þar eru ólíkir þættir mannlífsins á staðnum skoðaðir og Skálholt sett í stærra samfélagslegt og sögulegt samhengi.

Saman gefa Skálholtsbækurnar einstæða innsýn í líf og efnismenningu þessa mikilvæga biskupsseturs og samfélagsins sem þar þreifst, einkum á 17. og 18. öld.

Bókin er á ensku með samantekt á íslensku.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun