Höfundur: Jónas Kristjánsson
Sagnalíf – sextán greinar um fornar bókmenntir inniheldur úrval greina eftir Jónas Kristjánsson (1924–2014), fyrrverandi forstöðumann Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi.
Í þeim er fjallað um sígild viðfangsefni íslenskra fræða: aldur fornsagna, leit að höfundum þeirra, mál og stíl, sannfræði og skáldskap. Jon Gunnar Jørgensen, prófessor við Oslóarháskóla, ritar þátt um Jónas fremst í bókinni og henni lýkur á ritaskrá Jónasar sem nær yfir rúma sjö áratugi.
Bókin er hin 90. í ritröð Árnastofnunar, sem gefur hana út í heiðursskyni við Jónas.