Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Lars Mæhle, Lars Rudebjer

Afi Sölva sagtanna ætlar ekki að vera með fjölskyldunni um jólin eins og vanalega. En hann lofar að koma þeim rækilega á óvart í staðinn og sendir risavaxinn og dularfullan jólapakka með póstinum. Á aðfangadag kemur í ljós að bæði pakkinn og pósteðlan eru horfin! Ná Gauti og Sölvi að finna jólapakkann áður en jólin bresta á? Og getur verið að risavaxin ráneðla læðupokist um Mýrarskóg?

Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson íslenskuðu en þau voru tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir Leyndarmálið.

Sögurnar um Risaeðlugengið hafa slegið í gegn hjá íslenskum lesendum. Þær eru krúttlegar, fræðandi og fyndnar og henta ungu áhugafólki um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun