




Hámarksstuðningur, stöðugleiki og öryggi í þyngstu lyftunum. Picsil Neoprene hnéhlífarnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja meiri stöðugleika, stuðning í lyftingum. Hvort sem þú ert að taka þungar hnébeygjur, réttstöðulyftur eða krefjandi CrossFit æfingar veita hnéhlífarnar þéttan stuðning án þess að skerða þægindi. Hnéhlífarnar eru framleiddar úr þéttu og slitsterku neoprene-efni sem veitir góðan stuðning og stöðugleika í kringum hnéliðinn. Sniðið tryggir að þær falli vel að hnénu og fylgi hreyfingum líkamans. Helstu eiginleikar: Öflugur stuðningur og stöðugleiki – veita þéttan stuðning í kringum hnéliðinn og aukið öryggi í þungum lyftum. Hágæða neoprene-efni – slitsterkt efni sem sameinar stuðning og þægindi. Snið sem fellur að hnénu – tryggir gott hreyfifrelsi. Styrktir saumar – hannaðir til að þola mikla og reglulega notkun. Stamt innra byrði – hjálpar hnéhlífunum að haldast á sínum stað á æfingu. Svitaþolið efni – auðvelt að halda hreinu. Henta bæði á æfingar og í keppni – hannaðar fyrir kröfur styrktarþjálfunar og keppnislyftinga. Á ég að fá mér Hex Tech hnéhlífarnar eða Neoprene hnéhlífarnar? Fyrir crossfit með hlaupi, hoppum, hnébeygjum og ólíkum æfingum mælum við með Hex Tech Fyrir þungar hnébeygjur, réttstöðulyftur og mikla styrktarþjálfun mælum við með Neoboost
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun





