Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Caroline Criado Perez, Sæunn Gísladóttir þýddi

Í Ósýnilegum konum rannsakar Caroline Criado Perez sláandi rætur kynjamismununar og skoðar líf kvenna á heimilinu, á vinnustaðnum, á opinberum vettvangi, í heilbrigðiskerfinu og á fleiri stöðum daglegs lífs. Bókin byggir á hundruðum rannsókna víðsvegar um heiminn og er skrifuð á kraftmikinn og hnyttinn hátt með vænum hliðarskammti af leiftrandi greind.

Gögn og gagnasöfnun eru undirstaða heimsins í mörgum skilningi. Til að mynda reiðum við okkur á tölur þegar kemur að því að ráðstafa fjármunum og taka afdrifaríkar ákvarðanir í efnahagslegri uppbyggingu, heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu. Vandamálið er hins vegar að stór hluti gagnasöfnunar tekur ekki tillit til kyns og lítur á karlkynið sem sjálfgefið en kvenkynið sem frávik. Afleiðingin er að hlutdrægni er samofin kerfinu á öllum sviðum. Konur gjalda þessari hlutdrægni dýrum dómi, til að mynda með tíma sínum, peningum og oft heilsu sinni.

Ósýnilegar konur markar tímamót og er ógleymanleg afhjúpun sem mun breyta því hvernig við horfum á heiminn.

Sæunn Gísladóttir þýðir Ósýnilegar konur en hún hefur brennandi áhuga á efni bókarinnar. Sæunn er hagfræðingur og blaðamaður og hefur meðal annars starfað sem viðskiptablaðamaður og við ráðgjöf í þróunarsamvinnu.

4.150 kr.
Afhending