Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Ása Marin

Öruggt skjól á Eskifirði er hlýleg, rómantísk og bráðskemmtileg aðventusaga eftir hafnfirsku ljúflestrardrottninguna Ásu Marin sem á eftir að hitta hina fjölmörgu aðdáendur Hittu mig í Hellisgerði og Stjörnurnar yfir Eyjafirði  beint í hjartastað.

Kristín heldur svo mörgum boltum á lofti í einu að það er mesta furða að Sirkus Íslands sé ekki búinn að hafa samband. Það er starfsframinn, þrír fjörugir synir og allt sem þeim fylgir, hundur, köttur og auðvitað elskulegur eiginmaðurinn. Sá hagar sér eins og fjórða afkvæmið og lætur henni eftir mestalla ábyrgð á börnum og heimili.
En það kemur að því að kona fær nóg. Eftir vondar fréttir í vinnunni leggur Kristín af stað í óvænta ferð austur á firði til að heimsækja vin sinn og fá næði til að jafna sig og hugsa sinn gang. Þá skýtur fjallmyndarlegur heimamaður upp kollinum.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun