Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Norræn goðafræði og gleymdar kynjaverur vakna til lífsins, þegar Norður sem er 14 ára leggur af stað í leit að horfinni móður sinni.

Á leiðinni hittir hún skapanornirnar þrjár og íkornastrákinn Ratatosk sem vísar henni veginn til Niflheims. Þar í iðrum Jarðar er drekinn Níðhöggur í þann veginn að ráðast að rótum lífstrésins Yggdrasils.

Smám saman uppgötvar Norður að Jörðin er við það að farast, og að hún ein getur komið til bjargar.