Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Navee Exoskeleton S Pro er ytri vélræn göngu/hlaupa stoðgrind sem er hönnuð til að draga úr líkamlegu álagi við göngu, klifur og almenna útiveru. Það veitir handfrjálsan stuðning sem samstillist hreyfingum notandans. Stoðgrindin kemur í geymslutösku en það fer einstaklega lítið fyrir henni þegar hún er ekki í notkun. Stoðgrindin er einnig einstaklega einföld í notkun, hún er fest um mitti og læri og er síðan tilbúin í notkun um leið. Hægt er að stilla hversu mikla aðstoð grindin veitir með einföldum smellum á tækinu. Hámarksdrægnin er allt að 40.000 skref, eða u.þ.b. 25km og hægt er að nota tækið í -10-45° hita, með IP54 vottun er grindin einnig varin fyrir léttum vatnsskvettum og rigningu.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun