Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Erla S. Haraldsdóttir

My Mother’s Dream / My Dream er bókverk eftir Erlu S. Haraldsdóttur sem gefið er út í tilefni af einkasýningu hennar í Norrtälje Konsthall í Svíþjóð. Í bókinni er birtur draumur sem langamma hennar skráði þegar hún var unglingur. Frumritið er sýnt en auk þess eru birtar þýðingar á draumnum yfir á ensku, sænsku, þýsku og suðurafríska tungumálið IsiNdebele. Sé bókinni snúið við eru í henni auðar línur þar sem eigandi bókarinnar getur skráð sinn eða sína eigin drauma – og þannig haldið við þeim sið að skrá drauma sína.

Erla S. Haraldsdóttir hefur á undanförnum árum sýnt röð málverka þar sem föðurfjölskylda hennar er til umfjöllunar. Þetta eru verkaraðirnar Genesis, sem sýnd var í Konstepidemien í Gautaborg 2016, og Fjölskyldumynstur, sýning sem haldin var í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2019. Í verkinu Draumur móður minnar dýpkar Erla framsetningu sína á ættingjum sínum og ættarsögu. Hún deilir með viðtakandanum samskiptum langömmu sinnar, Svanhildar, við huldufólk, sögu sem er í senn persónuleg og tjáir um leið viðfangsefni sem var svo ótalmörgum hugstætt á Íslandi undir lok 19. aldar.

2.990 kr.
Afhending