Flokkar:
Size / Stærð: 500 ml
## Mosi Gin – Veðrað í Triple Sec tunnum á Eldfelli Eldfell varð til í gosi sem lagði nýjan grunn að Vestmannaeyjum árið 1973. Jarðvegurinn er enn volgur, hlíðarnar skjálfa í hávaðaroki og andrúmsloftið ilmar af söltum sjónum. Eldfjallið er útsett fyrir vályndum veðrum Norður-Atlantshafsins. Hitastigið sveiflast og loftþrýstingurinn líka. Breytingar á loftþrýstingi ýta gininu inn í viðinn í tunnunni og dregur það svo út aftur, aftur og aftur. ### Triple Sec tunnurnar Þetta Mosi Gin er veðrað í Triple Sec tunnum. Triple Sec er klassískur franskur appelsínulíkjör sem á rætur að rekja til 19. aldar. Hann er búinn til úr þurrkuðum berki sætra og beiskra appelsína sem skapa ferskan og skarpan sítruskeim með léttum sætleika. Þessi sígildi drykkur hefur í yfir hundrað ár verið hjarta ótal klassískra kokteila – allt frá Margarita til Cosmopolitan – þar sem hann skapar jafnvægi með sínum hreinu appelsínutónum. ### Bragðið Þegar Mosi gin fær að hvíla í tunnum sem áður geymdu triple sec, blandast íslenskt hráefni við sunnanævan sítrusilm. Ginið fær léttan appelsínukeim og mjúkan sætleika sem leggst yfir ferskan grunntóninn úr einiberjunum í gininu. Á Eldfelli, þar sem tunnurnar standa berskjaldaðar fyrir vindum og þrýstingsbreytingum úti á Atlantshafi verða bragðtónarnir léttari og þynnri með skörpum sítrusblæ. ### Berðu fram Við mælum með að þú drekkir ginið á klaka með örlitlu Fentimans Connoisseurs tóniki sem fæst hér í versluninni - og enga sítrónu eða límónu þannig að ginið njóti sín sem best. Þessi margslungnu brögð gerir ginið líka að að sérlega fjölhæfum drykk sem nýtist vel í klassískum kokteilum - það gefur gini og tónik dramatíska dýpt, skapar óvenjulegan og minnistæðan martini og umbyltir Negroni með sínum einstaklega reykta karakter. > *Framleitt í mjög takmörkuðu magni.*Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun

