Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Arnaldur Indriðason

Forsala!

Tryggðu þér Morðið á Evelyn Gray eftir Arnald Indriðason í forsölu og fáðu súkkulaði frítt með!

Afhending: Sæktu bókina í Bókabúð Forlagsins laugardaginn 31. október eða fáðu hana senda með Dropp – ATH pöntunarfrestur fyrir sendingu er til hádegis föstudaginn 30. október.

 

Þrítugasta bók Arnaldar Indriðasonar á jafn mörgum árum, hröð og hörkuspennandi glæpasaga þar sem amerískur kvikmyndaheimur mætir íslenskum veruleika í hringiðu óvæntra og skelfilegra atburða.

Ung lögreglukona, Lóla, er send frá Akureyri á Kópasker þegar fjölmennt kvikmyndatökulið frá Hollywood sem þar er að störfum kvartar undan heimafólki. Verið er að taka upp glæpaþáttaröð og heimsþekkt aðalleikkonan heldur hópnum í heljargreipum með dyntum sínum og kröfum. Í sömu andrá og norðlensk stórhríð skellur á og þorpið verður sambandslaust við umheiminn finnst leikkonan myrt með hrottalegum hætti. Lóla reynir að ná stjórn á aðstæðum með hjálp heimamanns sem eitt sinn var í lögreglunni og í myrkrinu hefst lífshættulegur eltingarleikur.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun