Höfundar: Hallfríður Ólafsdóttir, Linda Sigfúsdóttir, Þórarinn Már Baldursson
Þegar Maxímús Músíkús villist inn í tónlistarhúsið verður hann forvitinn um allt sem hann sér. Langar þig líka að vita meira um hljóðfæri og tónlist? Þá verður gaman að leysa þessar skemmtilegu þrautir með Maxa! Í bókinni er hægt að …
- hjálpa Maxa að komast í gegnum flókin völundarhús
- búa til fjölbreytt heimahljóðfæri
- setja nótur á nótnastreng
- læra að þekkja hljóðfæri og nótur
- teikna, lita og líma
- … og margt, margt fleira!
Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina – Þrautabók er fyrir alla krakka sem hafa gaman að tónlist. Höfundar bókarinnar eru hljóðfæraleikarar og tónlistarkennarar.
Límmiðar fylgja.