Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Hildur Þórðardóttir

Á leið stjarnanna og vindsins fjallar um konu sem gengur Jakobsveginn til að finna gleðina og tilgang lífsins á ný. Þar kynnist hún manni og í ljós kemur að þau hafa þekkst áður.

Í sögunni eru einnig nunna og munkur að ganga þessa sömu leið á miðöldum og sagan gerist á tveimur tímaskeiðum en á sömu slóðum. Smám saman opinberast hvernig allar þessar persónur eru tengdar órjúfanlegum böndum.

Þetta er þroskasaga og ferðasaga um ást, nánd, sambönd, höfnun, hugrekki, Guð, dýrlinga, kraftaverk og tilgang lífsins.