Höfundar: Elsa Nielsen, Jóna Valborg Árnadóttir
Kormáki finnst gaman að leika sér. Þegar Finna frænka kemur í heimsókn með óvæntan glaðning færist fjör í leikinn. Kormákur bregður sér í alls konar gervi en Finna frænka hefur eitthvað annað og meira í huga.
Kormákur leikur sér er bráðskemmtileg saga um dreng sem veit hvað hann vill.