Flokkar:
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Kjúkling má nýta á ótrúlega margvíslegan hátt, jafnt í ódýra hversdagsrétti sem fínasta veislumat. Hér gefur Nanna uppskriftir að fimmtíu frábærum kjúklingaréttum þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og sýnir fjölbreyttar en einfaldar matreiðsluaðferðir þar sem kjúklingur verður að gómsætum kræsingum af öllu tagi.
Nanna Rögnvaldardóttir er löngu orðin landsþekkt fyrir skrif sín um mat og matargerð og einfaldar en gómsætar uppskriftir að alls kyns réttum. Hún hefur sent frá sér á annan tug vinsælla matreiðslubóka, þar á meðal Smárétti Nönnu, Jólamat Nönnu og Múffur í hvert mál.
Kjúklingaréttir Nönnu var tilnefnd til alþjóðlegu Gourmand-verðlaunanna í flokknum „Best Single Subject Cookbook“.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun