Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Aðalheiður Guðmundsdóttir, Ármann Jakobsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Jón Yngvi Jóhannsson, Margrét Eggertsdóttir, Sveinn Yngvi Egilsson

„Í riti sem fjallar um íslenska bókmenntasögu er eðlilegt að í upphafi sé leitað svara við þremur spurningum: Hvað eru bókmenntir? Hvað er íslenskt? Hvað er saga bókmennta? Þessara spurninga er raunar ekki síst spurt hér í upphafi til að lesendur átti sig á að höfundar þessa rits ætla sér ekki þá dul að setja saman einfalda lýsingu á ástandi sem blasir við öllum.“

Íslenskar bókmenntir: Saga og samhengi er tveggja binda verk um sögu íslenskra bókmennta frá upphafi Íslandsbyggðar til vorra daga. Þar er sagan rakin á knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers tíma og er sú umfjöllun grundvölluð á rannsóknum seinustu áratuga. Verkið er ætlað háskólastúdentum, kennurum og áhugamönnum um íslenskar bókmenntir.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun