Sjáðu til þess að kötturinn þinn njóti bestu umönnunar allt frá fæðingu.
Auðskiljanleg og ítarleg handbók með góðum ráðum í máli og myndum um mataræði, umhirðu, æfingar og leiki, til þess fallin að auka skilning kattaeigenda á dýrinu sínu. Nákvæmar upplýsingar um alls kyns kvilla og sjúkdóma hjálpa til við að greina vandamál strax og bregðast rétt við.
Nauðsynleg handbók fyrir alla kattaeigendur.
- Að hverju þarf að huga þegar köttur er tekinn inn á heimilið?
- Hvernig á að búa kettinum öruggt umhverfi og tryggja honum innihaldsríkt líf?
- Hvað á að gera þegar kisa verður veikur eða slys ber að höndum?