Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Size / Stærð: 500 ml

Ræktaðu þína eigin flugeldasýningu – og skálaðu fyrir henni. Í pakkanum er bleiki haustlaukakassinn frá Eldblóm og ein flaska af Eldblómi, íslenska spritzinum. Eldblóm á rætur að rekja til verksins „Eldblóm – dansverk fyrir flugelda og flóru“ eftir Siggu Soffíu, sem opnaði á Listahátíð í Reykjavík 2020, en blómin úr verkinu skörtuðu sínu fegursta allt sumarið í Hallargarðinum við Tjörnina. Með haustlaukakassanum ræktar þú brot af listaverkinu heima hjá þér. Japanska orðið yfir flugelda, hanabi, merkir bókstaflega eldblóm, enda sækja flugeldar fyrirmyndir sínar í blóm á borð við dalíur, krísur, liljur og bóndarósir. Laukarnir eru valdir eftir útliti og blómgunartíma og springa út hver á eftir öðrum. Lítið vesen og engin fyrirhöfn. Veldu skjólgóðan og sólríkan stað og settu laukana niður sem fyrst, um 15 cm djúpt með um 3 cm bili á milli. Eldblóm er handunninn íslenskur líkjör úr blómum sem ræktuð eru sérstaklega í garðyrkjustöðinni Espiflöt. Blandaðu 1/3 Eldblóm á móti 2/3 kampavíni fyrir léttan og blómlegan íslenskan spritz. Eldblóm gefur 1.000 krónur af hverri seldri flösku til Bleiku slaufunnar og Santé leggur aðrar 1.000 krónur á móti – alls renna því 2.000 krónur af hverjum seldum pakka til Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun