Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: George Steiner, Trausti Ólafsson

Dauði harmleiksins eftir George Steiner kemur út í þýðingu Trausta Ólafssonar, sem einnig ritar inngang.

Saga vestrænnar menningar er hér öll undir, og Steiner bregður á hana skýru ljósi kenningarinnar sem hann hefur fram að færa: að hið harmræna sé að mestu horfið úr samtíma okkar.

Steiner má heita menntamaður af gamla skólanum, fjöltyngdur og margfróður með afbrigðum. Þessari miklu kunnáttu hans ber Dauði harmleiksins fagurt vitni. Hann fer yfir sögu harmleiksins frá tímum Forn-Grikkja fram á okkar daga og sýnir hvað við höfum misst þegar hin harmræna rödd hefur dofnað í leikhúsinu.