Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Maður finnst myrtur á hrottalegan hátt á heimili sínu á afskekktum stað í nágrenni Norrköping. Í illa leiknu líkinu finnst bangsi og tuskudýrið leiðir Henrik Levin og Miu Bolander rannsóknarlögreglumenn til Filippu Falk sem starfaði áður hjá lögreglunni. Hún fer huldu höfði eftir harmleik í fjölskyldunni og virðist ein búa yfir upplýsingum sem gætu leitt til lausnar málsins.

Jana Berzelius saksóknari tekur þátt í rannsókninni. Maðurinn sem hún elskar hefur grun um að hún eigi sér myrka fortíð og hefur einsett sér að komast að því hver hún er – hvað sem það kostar. Morðrannsóknin tekur óvænta stefnu á sama tíma og Jönu gengur stöðugt verr að hylja slóð sína. BJÖRNINN SEFUR er sjöunda bókin um Jönu Berzelius.

3.690 kr.
Afhending