Höfundur: Sally Rippin
Þetta er tíunda bókin í flokknum vinsæla um Binnu B Bjarna og ævintýri hennar. Þessar bækur eru helst ætlaðar ungum lesendum sem eru að taka sín fyrstu skref í bóklestri og eru með stóru letri og góðu línubili.
Nú hefur Binna tekið að sér þá ábyrgð að taka á móti nýjum nemanda og vera vinur hennar.
En Binnu stendur ekki á sama þegar stelpan fer að herma eftir henni í einu og öllu.