Höfundur Jón Kalman Stefánsson
Þannig hljómaði niðurlagið á fyrstu gagnrýninni sem ég fékk á ljóðabókina mína, sem kom út í marsmánuði árið 1988, skrifar Jón Kalman Stefánsson í eftirmála þessa ljóðasafns sem hefur að geyma ljóðabækur hans þrjár;
Með byssuleyfi á eilífðina (1988), Úr þotuhreyflum guða (1989) og Hún spurði hvað ég tæki með mér á eyðieyju (1993) auk nokkurra áður óbirtra ljóða.
Skáldið gerir grein fyrir ólíkindalegri tilurð sinni í leiftrandi fjörugum eftirmála um bókmenntalíf Reykjavíkur og Sandgerðis á ofanverðri 20. öld.
Jón Kalman hefur verið þekktari sem skáldsagnahöfundur; fyrsta skáldsaga höfundar, Skurðir í rigningu, kom út árið 1996 og sú tólfta, Saga Ástu árið 2017. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin, árið 2005.