Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Heiðrún Geirsdóttir, Jón Gunnar Þorsteinsson, Margrét Gunnarsdóttir

Í bókinni Þættir úr menningarsögu er komið víða við í menningarsögunni og byrjað hjá Grikkjum og Rómverjum, enda liggja hjá þeim rætur mikilvægra hugmynda, þekkingar og gildismats sem mótað hafa menningarsögu í okkar heimshluta.

Haldið er áfram allt til nútíma og völdum atriðum gerð skil og leitast við að hafa fjölbreytni í efnisvali. Þannig er hugað að þáttum allt frá byggingum og listum til trúarbragða, sjálfsmyndar, híbýlahátta og tísku, eftir því sem tímabilin þóttu gefa tilefni til.

Þannig gefst lesendum tækifæri til að grípa niður í einstökum þáttum sem telja má til menningarsögu og fá tilfinningu fyrir því hve víðfeðmt hugtakið er.

6.230 kr.
Afhending