Höfundar: Arndís Þórarinsdóttir, Hulda Sigrún Bjarnadóttir
Helga Sjöfn vill helst vera úti á sjó í hvalaskoðun með afa. Uppi á landi er nefnilega eintómt vesen.
Mamma er komin með blátt hár og tattú, pabbi með nýja konu og agnarsmáa tvíbura og 7. bekkur er gagnslaus fyrir krakka sem ætla að verða skipstjórar.
Þegar allt verður vitlaust út af fjarvistum er Helga send á félagsfærninámskeið fyrir börn í vanda. Hún þarf augljóslega ekkert á því að halda en úr því að hún neyðist til að mæta þá getur hún að minnsta kosti reynt að kynnast sæta fótboltastráknum með flotta hárið. Í leiðinni getur hún hrint feimna sveitastráknum honum Jóni út fyrir þægindarammann, eins og er honum augljóslega fyrir bestu.
BABB er sprellfjörug bók um vináttu, hvali, flókin fjölskyldutengsl og hömlulaus gæludýrakaup. Sagan er ríkulega myndlýst af Estelle Pollaert.
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa skrifað saman tvær geysivinsælar barnabækur, Blokkina á heimsenda og Mömmuskipti, og hlotið fyrir þær fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal eru Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Íslensku bókmenntaverðlaunin, ásamt tilnefningum til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Þýsku barnabókaverðlaunanna.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun

