Veldu heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Rebekka Rafnsdóttir

Orð geta lýst heimi, en þau geta líka orðið að efninu sem heimur verður til úr. Í bókinni Auðna málar textinn ekki fullgerðar myndir heldur lætur þær kvikna í huga lesandans. Í gegnum vatn, líkama, form og umbreytingar birtist það sem erfitt er að færa í orð; það sem ýmist verður sýnilegt eða aðeins skynjað. Þannig skapast rými þar sem lesandinn mætir eigin skynjun og tekur þátt í að móta þær myndir sem orðin kalla fram. Lesturinn er því þátttaka ekki inntaka.

Það sem virðist kyrrt er þegar tekið

að hreyfast á leiðinni að verða annað.

Rebekka Rafnsdóttir er fædd árið 1987. Hún vinnur með ólíka miðla, einkum ritlist, kvikmyndir og ljósmyndun. Hún hefur lokið BA-prófi í ritlist og heimspeki frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í ritlist frá The New School í New York. Skrif hennar hafa birst í bókmenntatímaritunum A Public Space og HOW Journal. Árið 2017 varð hún fyrsti handhafi Bette Howland Nonfiction Prize fyrir verkið A Girl on the Hunt. Rebekka hefur einnig starfað við kennslu og stofnaði Cottonwood Reykjavík árið 2021.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun