Pizzan x Aha - opnunarblað

Allir 9 Pizzan staðir á höfuðborgarsvæðinu á Aha.is - staða, uppsetning og markaðsefni.

Trúnaðarmál - aðeins fyrir Aha og starfsfólk Pizzan. Ekki deila slóðinni utan hópsins.
Pizzan á Aha

Ný aðalmynd Pizzan á Aha, notuð á öllum 9 stöðunum (í loftinu).

Staðan í stuttu máli

  • 9 staðir eru opnir og hægt að panta á eigin slóð á Aha.
  • Staðirnir eru enn faldir úr leit og flokkum á Aha. Viðskiptavinir finna þá aðeins með beinum hlekk þar til við opnum fyrir alla.
  • Tilboðin Kombó og Partý Pakkinn eru virk á öllum stöðum.
  • Markaðsefnið er tilbúið sem drög og fer í loftið þegar opnun er staðfest.

Staðirnir

Tilboðin

Kombó
frá 2.720 kr.

Hvaða stóra pizza sem er (30% afsláttur af matseðilsverði) og meðlæti eða eftirréttur (25% afsláttur). Dæmi: Margaríta + franskar = 3.890 kr. í stað 5.480 kr.

Partý Pakkinn
8.990 kr. 14.950 kr.

2 stórar pizzur, 2 meðlæti og 2L gos.

Hvernig þetta er sett upp

Matseðill og verð

  • Matseðillinn kemur sjálfvirkt úr kerfi Pizzan (Upsell) og er sá sami á öllum 9 stöðum.
  • Á Aha eru aðeins stórar pizzur, ásamt meðlæti, eftirréttum og drykkjum.
  • Af tilboðum Pizzan eru aðeins Kombó og Partý Pakkinn á Aha. Önnur tilboð og hverfistilboð einstakra staða eru ekki með.
  • Verðin eru þau sömu á öllum stöðum og innflutningurinn úr Upsell yfirskrifar ekki Aha verð.

Pantanir

  • Hver pöntun fer á þann stað sem viðskiptavinurinn pantar frá, í gegnum Upsell, eins og hjá Fellsmúla í dag.
  • Opnunartímar koma frá hverjum stað fyrir sig.

Breytingar á matseðli

  • Nýjar vörur og breytingar í Upsell koma inn á Aha við næstu innkeyrslu. Ef eitthvað á ekki að vera á Aha, eða verð á að vera annað, látið Aha vita.

Markaðsefni

Það sem er „Drög“ er tilbúið en ekki komið í loftið. Það birtist þegar opnun er staðfest.

Aðalmynd á öllum stöðumÍ loftinu
Flís í keðjuborða á Torginu - vísar á Pizzan síðunaDrög - ekki birt
Pizzan síða á Aha (aha.is/pizzan) - allir staðir og tilboð, íslenska og enskaDrög - ekki birt
Pizzan síðan í símaDrög - ekki birt
Borði á Torginu og veitingasíðunni + kynningarborði með vörum næsta staðarDrög - ekki birt

Myndir af síðu og borðum eru prufuútgáfur. Endanlegt útlit getur breyst lítillega.

Hvaða stað sér viðskiptavinurinn?

Borðarnir sýna næsta Pizzan stað miðað við póstnúmer heimilisfangs viðskiptavinar.

StaðurPóstnúmer
Fellsmúli103, 104, 105, 108
Hringbraut101, 102, 107, 170
Hverafold112, 113
Lóuhólar109, 110, 111, 203*
Mosfellsbær270
Fjarðargata220, 221
Litlatún210, 212, 225*
Núpalind201
Nýbýlavegur200

* Á eftir að staðfesta: 203 (Lóuhólar eða Núpalind) og 225 (Litlatún eða Fjarðargata).

Næstu skref

  • Staðfesta póstnúmeraskiptingu.
  • Setja Pizzan síðuna, flísina og borðana í loftið.
  • Opna fyrir leit og flokka á Aha.
  • Pizzan: senda Aha merki (logo) í hárri upplausn (SVG eða PNG).

Aha.is - uppfært 19. október 2026