Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Höskuldur Sæmundsson, Rán Flygenring, Stefán Pálsson

Næst á eftir tei og vatni er bjór vinsælasti drykkur jarðarbúa og nánast hvert land jarðar á sína sérstöku bjórsögu. Á síðustu áratugum hefur áhugi á bjórmenningu og bjórgerð aukist víða um lönd eftir því sem örbrugg­ húsum hefur vaxið fiskur um hrygg og framboð af fjölbreyttum bjórtegundum aukist.

Stefán Pálsson og Höskuldur Sæmundsson hafa um árabil frætt Íslendinga um lystisemdir bjórsins í hinum stórvinsæla Bjórskóla og miðla nú af þekkingu sinni í fyrstu bjórbókinni sem kemur út á íslensku í áraraðir. Í félagi við Rán Flygenring fara þeir í heimsreisu með hjálp 120 bjórtegunda sem allar eiga það skilið að menn dreypi á þeim einhvern tíma á lífsleiðinni.

5.540 kr.
Afhending