Að byrja í grunnskóla er ætlað að veita foreldrum og öðrum uppalendum upplýsingar um grunnskólann. Ritið fjallar um þau þáttaskil sem verða í lífi barna í upphafi skyldunáms, um þroska 5-7 ára barna, samstaf heimila og skóla, stjórn og hlutverk grunnskólans, auk ýmissa hagnýtra upplýsinga.
Markmið með ritinu er jafnframt að styrkja tengsl heimila og skóla en vellíðan og velgengni barna í námi byggist öðru fremur á góðum samskiptum og gagnkvæmu trausti þessara aðila.
Ritið er m.a. samið með það í huga að það geti nýst á kynningarfundum eða á námskeiðum fyrir foreldra og að það fái sem víðtækasta umfjöllun á heimilum og í skólum.