Leyfðu þér smá og dekraðu við bragðlaukana, líkama og sál, allt í einum pakka með ljúffengum brunch og endurnærandi slökun í glæsilegri heilsulind í Miðgarði spa. Innifalið í tilboðinu er brunch með glasi af mímósu á Jörgensen Kitchen & Bar ásamt aðgangi í heilsulindina á Miðgarði spa og frískandi freyðivínsglasi sem hægt er að njóta í þægilegum sætum eða ofan í heitu pottunum í heilsulindinni.
Brönsinn er hægt að njóta innandyra á Jörgensen eða úti í afgirtum garði veitingastaðarins yfir sumartímann og í Miðgarði spa er hægt að slaka á í fallegu og hlýlegu umhverfi, þægilegri birtu með notalegri músík. Þar er að finna gufubað, búningsklefa, heita potta sem staðsettir eru bæði innandyra sem og utandyra. Allir gestir fá mjúka baðsloppa og inniskó við komu og geta því rölt á milli heitu pottanna til að upplifa öll dekurhornin sem finna má í Miðgarði spa.
Miðgarður spa er rúmgóð heilsulind og því tilvalinn kostur fyrir minni hópa sem vilja koma og gleðjast saman um leið og slakað er á.
Fallegt gjafabréf er sent með tölvupósti stuttu eftir að gengið hefur verið frá kaupunum. Á bréfinu eru helstu upplýsingar um gjöfina auk inneignarnúmers en verð kemur ekki fram. Þú prentar svo út gjafabréfið og gjöfin er tilbúin. Einnig er hægt að sækja inneignina rafrænt í Apple veskið eftir kaup
Jörgensen Kitchen & Bar
Veitingastaðurinn Jörgensen Kitchen & Bar er líflegur staður staðsettur á góðum stað í miðborginni. Á Jörgensen er boðið upp á ljúffengar veitingar, létt yfirbragð og fallegt umhverfi – útkoman er einskær notalegheit. Matseðillinn samanstendur af spennandi réttum gerðum úr fersku, íslensku hráefni sem blandað er saman með alþjóðlegu tvisti. Hægt er að sitja inni og úti á Jörgensen í afgirtum garði sem tilvalið er að njóta yfir sumartímann.
Happy Hour er alla daga á Jörgensen frá 16:00 til 18:00 og á fimmtudögum er lengri Happy Hour tími eða til kl. 20:00.
Miðgarður spa
Miðgarður spa er staðsett á Miðgarði by Center Hotels sem er glæsilegt hótel staðsett á Laugavegi 120. Í heilsulindinni er gufubað, heitir pottar innandyra og utandyra, líkamsræktaraðstaða með góðum tækjakosti og úrval af nuddmeðferðum sem boðið er upp á í sérútbúnum meðferðaherbergjum sem hægt er að óska eftir. Bóka þarf nuddmeðferð með 24 klst. Fyrirvara.
Helgarbrunch og Spa, dekur fyrir bragðlauka, líkama og sál fyrir tvo
Smáa Letrið
- - Opið er í Miðgarði spa frá 10:00 til 22:00 alla daga vikunnar.
- - Brönsinn er aðeins í boði milli 11:30 - 16:00 á laugardögum og sunnudögum
- - 18 ára aldurstark í spa. Hægt er að skipta út freyðivíni fyrir sódavatn.
- - Nauðsynlegt er að bóka fyrirfram í síma 595 8560 eða með því að senda póst á [email protected]
Gildistími: 09.09.2024 - 09.09.2024