Vandað pottasett frá hinu heimsfræga þýska WMF merki. Pottarnir eru úr 18/10 hágæða Cromargan stáli með glansandi yfirborði. TransTherm 4,5 mm þykkur botn sem hentar á allar gerðir af hellum, líka span. Glerlok sem gefa góða yfirsýn yfir matreiðsluna.
- 1 x 20 cm lágur 2,0 lítra pottur með glerloki
- 1 x 20 cm hár 2,5 lítra pottur með glerloki
- 1 x 16 cm hár 1,5 lítra pottur með glerloki
- 1 x 24 cm hár 5,7 lítra pottur með glerloki
- 1 x 16 cm lágur 1,5 lítra skaftpottur
WMF pottasettið
- 18/10 hágæðastál sem hvorki ryðgar né tærist. 18/10 stál er ákaflega endingargott og auðþrífanlegt og engin útfelling myndast við þvott í uppþvottavél.
- Hentar á allar gerðir af hellum, keramik, gas eða spansuðu
- Jöfn hitadreifing á öllu yfirborðinu og afburða góð hitaleiðni í botninum, sem sparar þér tíma, peninga og tryggir góðan árangur
- Afar auðveldir í þrifum og þola uppþvottavél
- Lífstíðarábyrgð gagnvart framleiðslugöllum
- 30 daga ánægjuábyrgð - Prófaðu pottana í 30 daga, ef þú ert ekki fyllilega ánægð(ur), þá endurgreiðum við þér að fullu.